laugardagur, 31. maí 2014

Hollur og einfaldur papríkufiskréttur

Gerði þennan fiskrétt um daginn og hann reyndist einstaklega góður - og einfaldur. Ég fattaði ekkert að taka mynd svo hér er bara uppskriftin en ég redda því næst þegar ég skelli í þennan rétt - sem verður pottþétt fljótlega :)

Papríkufiskréttur fyrir 4.

2 góð fiskflök (þorskur eða ýsa)
2 - 3 papríkur, gjarnan sitt hvor liturinn
2 laukar
4 msk. smurostur að eigin vali
Rifinn ostur
1 msk. ólífuolía
fiskteningur
chilli explotion krydd
Saltverks salt

Skerið fiskinn í ferhyrnda bita og stráið í eldfast mót. Kryddið með chilli explotion kryddi og saltverks salti. Skerið lauk og papríku í litla bita og steikið upp úr olíunni. Þegar það er orðið mjúkt, setjið þá smurostinn út í og fiskteninginn. Bræðið vel saman. Það ætti að koma vökvi úr grænmetinu en ef ekki, þá má setja 2-3 msk. af mjólk út í til að gera meira úr ostasósunni. Þessu er síðan hellt yfir fiskinn og osti stráð yfir. Sett inn í ofn og hitað í 5-10 mínútur. Mér finnst ekki gott að hafa fiskinn of mikið eldaðan svo ég passa upp á að hafa réttinn ekki of lengi í ofninum :)

fimmtudagur, 29. maí 2014

Franskt þema


Matseðill dagsins:
Ratatoulle
Quiche
Baguette
Crépes með hrísgrjónafyllingu og sinnepssósu
Frönsk súkkulaðikakka

Hvaða matur dettur ykkur helst í hug þegar minnst er á Frakkland? Ég hefði sagt t.d. önd, sniglar, Ratatoulle, Crépes, franskar makkarónur og Baguett - og svo auðvitað frönsk súkkulaðikaka. Þar sem matseðillinn á að miðast við eitthvað sem hægt er að gera með unglingum, tekur tiltölulega stuttan tíma, fremur einfalt í framleiðslu og kostar ekki of mikið var strax hægt að strika út önd, snigla og makkarónukökur. En eftir stendur þessi flotti matseðill sem kostar frekar lítið að framleiða, er ekki of flókið og mikið af hollustu.
Ratatoulle - kannski þekktast hjá yngri kynslóðinni vegna ansi góðrar og vinsællar teiknimyndar :) En uppskriftin er full af hollustu enda er þetta grænmetisréttur - litríkur og bragðgóður.
1/3 bolli góð ólífuolía
5 stórir hvítlauksgeirar - grófsaxaðir
2 stórir laukar - saxaðir
2 rauðar papríkur - skornar í bita
6 tómatar - skornir í teninga
3 eggaldin - skorin í teninga
3 kúrbítar - skornir í teninga
1/4 bolli söxuð steinselja
1/4 bolli grófsöxuð basilika
6-8 greinar thyme
2 tsk. salt 
Setjið ólífuolíuna í þykkbotna pott.

"þessi færsla er í vinnslu"

Hollustudrykkur og Tandoori kjúklingavefja


Í vor bjuggum við til Grænan hollustudrykk og Tandoori kjúkling með mangósalsa í hveitikímvefju. Hljóma vel ekki satt? Og eintóm hollusta. Við erum t.d. að nota avókadó og spínat í drykkinn. Avókadó er stútfullt af kalíum og það er einnig auðugt af prótíni. Það er líka auðugt af andóxunarefnum, amínósýrum og mikilvægum olíum. Spínatið er er ríkt af járni og kalki og vítamínum svo þetta tvennt, ásamt öðru hráefni sem notað er í drykkinn, gerir þér bara gott :) Hér er uppskriftin af drykknum:

Grænn hollustudrykkur:
3dl. vatn
2 dl mangó
1/2 avakadó
1 tsk. límónusafu
handfylli af spínati
1 daðla eða smá stevia
1 epli, afhýtt og skorið
Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað vel saman. Ef ykkur þykir drykkurinn of þykkur, bætið þá smá köldu vatni útí. 
Og svo er það Kjúklingavefjan. Í hana erum við t.d. að nota hveitikím. Hveitikím er innsti kjarni hveitiofnsins og þykir einstaklega næringaríkt. Vegna þess hve mikið er af flóknum kolvetnum og próteini í hveitikími er það einstaklega gott fyrir uppbyggingu vöðva. mikið magn vítamína og fitusýra gerir hveitikím að fullkonu náttúrulega fæðubótaefni. Í vefjuna notum við líka ofurkryddið túrmerik. Ég gæti skrifað góða grein um eiginleika kryddsins en læt nægja í bili að koma inn á að það er hlaðið andoxunarefnum ásamt því að hafa bólgueyðandi áhrif. Það er svo einstakt og öflugt að það ver í reuninni og bætir flest líffæri líkamans. Ég fékk einnig fróðleik hjá góðri indverskri konu að það gerði kraftaverk á brunasár. Þá er því blandað út í jógúrt eða ab mjólk og borið á brunasárið. Endilega leitið ykkur upplýsinga um eiginleika túrmeriks og notið það hiklaust í matargerð :).

Hér er uppskriftin af vefjunum:
Hveitikímvefjur:
3 dl. heilhveiti
2 dl. hveitikím
1 tsk. túrmerik
1 tsk. sjávarsalt
3/4 dl. ólífuolía
200 ml. heitt vatn
Aðferð:
  1. blandið hveiti, hveitikími og kryddi saman í skál.
  2. hitil vatn og olíu. Blandið saman við þurrefnin og hnoðið saman.
  3. Takið smá bita af deiginu sem ætti að passa fyrir eina vefju og fletjið út í hring.  Gott að fletja út nokkrar áður en maður byrjar að steikja.
  4. Þetar allt meðlætið er tilbúið hitið þá góða pönnu og þurrsteikjið vefjurnar á báðum hliðum, eina af annarri. Ágætt er að hafa rakann klút til þess að leggja yfir þegar þær hafa verið steiktar svo raki haldist í þeim og þær brotni síður þegar á að borða þær.
Í kjúklinginn veljum við 100% kjúkling eða úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose. Við höfum engan áhuga á því að það sé búið að sprauta einhverjum aukaefnum í kjúklinginn okkar sem líka veldur því að kjúklingurinn rýrnar meira við eldun.

Hér kemur uppskriftin af kjúklingnum:
Tandoori kjúklingur:
4 kjúklingabringur
2 msk. ólífuolía
2 tsk. tandoori krydd
1/2 tsk. sjávarsalt
Aðferð: 
  1. skerið kjúklingakjöt í strimla
  2. hitið olíu á pönnu við meðalhita og steikið kjúklinginn
  3. kryddið með tandoori kryddi og salti
Svo er það mangósalsað. Í það notum við t.d. rautt chillí sem getur haft áhrif á meðhöndlun eða komið í veg fyrir gigt, krabbamein, hjartasjúkdóma og fleirra.
Síðast en ekki síst er það sósan, grænmetið og hneturnar. Við notum klettasalat þar sem það er bragðmikið og gott ásamt því að vera ríkt af c-vítamíni og járni. Kasjúhnetur eru eins og aðrar hnetur ríkar af hollri fitu og fólínsýru sem verndar líkaman gegn hjartasjúkdómum og krabbameini. Hér er uppskriftin af sósunni og lokahöndinni á að gera vefjurnar tilbúnnar til þess að bera fram.

Sósa:
1 dós sýrður rjómi
2 tsk. mangó chutney
1 tsk. tandoori krydd
Sjávarsalt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Hrærið öllu saman
75-100 gr. af klettasalati eða blandað salat
1 poki Kasjúhnetur
Dreifið kjúklingi ofaná vefjurnar, setjið síðan sósu og mangósalsa þar yfir. Dreifið síðan salati og hnetum yfir allt saman og rúllið upp.

 Bon appetit :)

laugardagur, 25. maí 2013

Indverskt þema


Indverskur matur er sérstaklega ljúffengur. Og ekki skemmir fyrir að hráefnið sem notað er í inverskri matargerð er flest mjög hollt.
Fyrir áramót vorum við með indverskt þema. Þar gerðum við m.a. þennan ljúffenga og bragðmiklia kjúklingarétt. Í þennan kjúklingarétt notum við t.d. niðursoðna tómata. Tómatar eru fullir af C vítamíni sem og A (mikilvægt fyrir húðina okkar og nætursjón) og K vítamínum (mikilvægt gegn beinþynningu). Einnig innihalda tómatar E vítamín (mikilvægt fyrir húðina) og zinc. Þeir innihalda einnig hið sterka andoxunarefni lycopene sem hafa stóru hlutverki að gegna við að sporna gegn myndun krabbameinsfruma. Zinc er sérlega mikilvægt fyrir frjósemi, sérstaklega karlmanna. Niðursoðnir tómatar eru bæði hollir og ódýrir (sérstaklega ef þeir eru lífrænt ræktaðir) og eru almennt hollari heldur en ferskir tómatar. Hvítlaukur er ein verðmætasta matartegund sem fyrirfinnst á jörðinni. Hann er öflugasta sýkla"lyfið" sem kemur beint frá náttúrunnar hendi, er öflug lækningajurt, berst á móti sýkingum og er góður fyrir hjarta- og æðakerfi og styður við meltingu. Hvítlaukur lækkar blóðþrýsting, hann hefur blóðþynningaráhrif og leggur sitt að mörkum til að vinna á móti hjartaáföllum. Hann vinnur einnig á móti slæma kólesterólinu ásamt því að vera kjörinn til að verjast og berjast gegn kvefi og flensu. Hvítlaukurinn byggir upp og ver meltingarveginn. Hann örvar losun meltingarensíma og styður við upptöku næringarefna auk þess að efla framleiðslu brisins á insúlíni sem hjálpar til við að takast á við sykursýki. Hann inniheldur öflug andoxunarefni og vinnur á móti myndun á krabbameinsfrumum. Engifer er heilsufæða sem vinnur gegn bólgum, dregur úr blóðþrýstingi, bætir blóðsykurstjórnun og örvar meltingarkerfið. Engiferrót þykir einnig ákaflega góð við hálsbólgu, kvefi, flensu, bronkítis og astma.

Kókos korma kjúklingur 
6-800 gr. kjúklingalundir eða úrbeinuð kjúklingalæri
1 dós niðursoðnir tómatar
1 stór dós kókosmjólk
4-5 cm. bútur engifer
8 stórir hvítlauksgeirar
2 saxaðir laukar
Kryddblanda:
4 msk. kashew hnetur
2 msk. kóríander
1 tsk. cummin
1 tsk. túrmerik
1 tsk. garam masala
1 tsk. chilliflögur eða duft
1 tsk. svartur pipar
Blandið kryddunum vel saman og setjið í matvinnsluvél ásamt engifer, hvítlauk og 1 dl. af vatni. Maukið.
Hitil olíu á pönnu og mýkið laukinn í um 10 mínútur á miðlungshita eða þar til hann fer að taka á sig brúnan lit. Bætið kryddblöndunni saman við og veltið um á pönnunni í um 5 mín.
Bætið kjúklingabitunum á pönnuna og brúnið í nokkrar mínútur. Þá er tómötum og ab mjólk bætt á pönnuna. Blandið vel saman og látið malla í 20 - 25 mín. Þá er kókosmjólinni og hentunum bætt saman við. Látið malla á vægum hita í um 20 - 30 mín. þar til sósan verður þykk og fín. Þei mmun lengri tíma sem þið gefið sósunni, þeim mun betri verður hún.

Með kjúklingaréttinum voru borin fram ljúffeng hrísgrjón - uppskriftin kemur hér:
Pillao hrísgrjón
2 1/2 bollar basmati hrísgrjón
1 tsk. cummin fræ
1 kanilstöng
1 stór laukur
8 hvítlauksrif
1 tsk. salt
200 gr. frosnar grænar baunir
6 korn af svörtum pipar
5 negulnaglar
6 msk. olía
35 gr. engifer
3 stórir bollar vatn
1/2 bolli ab mjólk
Aðferð:
skolið og setjið hrísgrjónin í bleyti í ca. 15 mín. Blandið hvítlauknum og engiferinu saman í blandara. Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Hitið olíuna í djúpri pönnu og steikið laukinn þangað til hann verður ljósbrúnn og bætið öllu kryddinu við og bíðið í nokkrar sekúndur. Bætið síðan hvítlauks- og engifer blöndunni saman við og hrærið saman. Setjið grænu baunirnar út í. Síðan bætið þið við 1/2 bolla af ab mjólk og steikið allt vel saman þangað til olían skilst frá. Bætið vatninu við og hitið að suðu. Hellið vatninu af hrísgrjónunum og bætið þeim út í sjóðandi vatnið. Þegar hrísgrjónin eru komin að suðumarki, stillið þá á lægsta hita (með lokið á) og leyfið að malla þar til grjóin eru soðin (ca. 15 mín.).
Með þessu vorum við líka með guðdómlega góðan bananarétt sem kemur virkilega á óvart. Ég kenni nemendum mínum að dæma ekki réttina fyrirfram - smakkið og dæmið svo. Það er svo margt sem kemur á óvart. Sumt hráefni dytti manni ekki í hug að nota saman en reynist svo smella saman eins og flís við rass. Þessi bananaréttur er einmitt svoleiðis! Það ættu flestir að þekkja góða eiginleika banana - ef ekki, kíkið þá hingað http://bananar.is/stylesheet.asp?file=18112007173613 fyrir frekari fræðslu

Kela-Khela kachumber
5 vel þroskaðir bananar
1 stór agúrka, skorin í teninga
1 grænn chilli, saxaður smátt
50 gr. grófar malaðar hnetur
2 tsk. kókos
1 1/2 tsk. hrásykur
2-3 tsk. sítrónusagi
Salt eftir smekk.
Aðferð:
Skerið bananann í teninga og blandið við agúrkuna. Blandið því sem eftir er í uppskriftinni saman við og hitið í 30 mín. í ofni. ATH! það er ekki nauðsynlegt að hita þennan rétt - það er líka hægt að hita hann bara í stuttan tíma.
Nan brauð eru ómissandi með öllum indverskum mat. Það er hægt að finna margar góðar uppskriftir á netinu og ýmis tilbrigði. Í grunninn þarf bara hveiti/heilhveiti, salt, olía og vatn en í flestum uppskriftum er líka ger. Síðan er hægt að bæta kryddi, rússínum, osti, kókos eða smjöri við uppskriftina. 
2-3 bollar heilhveiti
1-2 tsk. salt
2-3 msk. olía
2 tsk. þurrger
Vatn eftir þörfum
Setjið þurrefnin saman og vætið í með volgu vatni. Brauðið á að vera þannig að það sé blautt án þess að límast mikið við hendurnar þegar maður hnoðar. Skiptið í nokkrar hnefastórar bollur, fletjið út og steikið. Mér finnst best að grilla þessi brauð og pensla með smjöri og hvítlaukssalti. Það er líka hægt að fletja deigið þunnt út og leggja tvær "pönnukökur" saman með t.d. rússínum, kókos og kryddi á milli - eða góðum osti og kryddi. 

Smá viðbót hérna í sambandi við Chillí kryddblöndur. Athugið að þær eru mis sterkar! Ég nota t.d. chillíduftið frá Himneskri hollustu og það er sterkt og þess vegna nota ég minna á því en tekið er fram í uppskriftum. Því er alltaf best að prófa sig áfram. ALDREI byrja á því að setja tiltekið magn út í uppskrift án þess að hafa reynslu af kryddinu. Sumu þarf meira af en sumu minna. Það er ekkert leiðinlegra en að vera búin að leggja sig fram við að elda flottan rétt og gera hann svo óætan með of sterku kryddi.