Gerði þennan fiskrétt um daginn og hann reyndist einstaklega góður - og einfaldur. Ég fattaði ekkert að taka mynd svo hér er bara uppskriftin en ég redda því næst þegar ég skelli í þennan rétt - sem verður pottþétt fljótlega :)
Papríkufiskréttur fyrir 4.
2 góð fiskflök (þorskur eða ýsa)
2 - 3 papríkur, gjarnan sitt hvor liturinn
2 laukar
4 msk. smurostur að eigin vali
Rifinn ostur
1 msk. ólífuolía
fiskteningur
chilli explotion krydd
Saltverks salt
Skerið fiskinn í ferhyrnda bita og stráið í eldfast mót. Kryddið með chilli explotion kryddi og saltverks salti. Skerið lauk og papríku í litla bita og steikið upp úr olíunni. Þegar það er orðið mjúkt, setjið þá smurostinn út í og fiskteninginn. Bræðið vel saman. Það ætti að koma vökvi úr grænmetinu en ef ekki, þá má setja 2-3 msk. af mjólk út í til að gera meira úr ostasósunni. Þessu er síðan hellt yfir fiskinn og osti stráð yfir. Sett inn í ofn og hitað í 5-10 mínútur. Mér finnst ekki gott að hafa fiskinn of mikið eldaðan svo ég passa upp á að hafa réttinn ekki of lengi í ofninum :)
laugardagur, 31. maí 2014
fimmtudagur, 29. maí 2014
Franskt þema
Matseðill dagsins:
Ratatoulle
Quiche
Baguette
Crépes með hrísgrjónafyllingu og sinnepssósu
Frönsk súkkulaðikakka
Hvaða matur dettur ykkur helst í hug þegar minnst er á Frakkland? Ég hefði sagt t.d. önd, sniglar, Ratatoulle, Crépes, franskar makkarónur og Baguett - og svo auðvitað frönsk súkkulaðikaka. Þar sem matseðillinn á að miðast við eitthvað sem hægt er að gera með unglingum, tekur tiltölulega stuttan tíma, fremur einfalt í framleiðslu og kostar ekki of mikið var strax hægt að strika út önd, snigla og makkarónukökur. En eftir stendur þessi flotti matseðill sem kostar frekar lítið að framleiða, er ekki of flókið og mikið af hollustu.
Ratatoulle - kannski þekktast hjá yngri kynslóðinni vegna ansi góðrar og vinsællar teiknimyndar :) En uppskriftin er full af hollustu enda er þetta grænmetisréttur - litríkur og bragðgóður.
1/3 bolli góð ólífuolía
5 stórir hvítlauksgeirar - grófsaxaðir
2 stórir laukar - saxaðir
2 rauðar papríkur - skornar í bita
6 tómatar - skornir í teninga
3 eggaldin - skorin í teninga
3 kúrbítar - skornir í teninga
1/4 bolli söxuð steinselja
1/4 bolli grófsöxuð basilika
6-8 greinar thyme
2 tsk. salt
5 stórir hvítlauksgeirar - grófsaxaðir
2 stórir laukar - saxaðir
2 rauðar papríkur - skornar í bita
6 tómatar - skornir í teninga
3 eggaldin - skorin í teninga
3 kúrbítar - skornir í teninga
1/4 bolli söxuð steinselja
1/4 bolli grófsöxuð basilika
6-8 greinar thyme
2 tsk. salt
Setjið ólífuolíuna í þykkbotna pott.
"þessi færsla er í vinnslu"
"þessi færsla er í vinnslu"
Hollustudrykkur og Tandoori kjúklingavefja
Grænn hollustudrykkur:
3dl. vatn
2 dl mangó
1/2 avakadó
1 tsk. límónusafu
handfylli af spínati
1 daðla eða smá stevia
1 epli, afhýtt og skorið
Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað vel saman. Ef ykkur þykir drykkurinn of þykkur, bætið þá smá köldu vatni útí.
Og svo er það Kjúklingavefjan. Í hana erum við t.d. að nota hveitikím. Hveitikím er innsti kjarni hveitiofnsins og þykir einstaklega næringaríkt. Vegna þess hve mikið er af flóknum kolvetnum og próteini í hveitikími er það einstaklega gott fyrir uppbyggingu vöðva. mikið magn vítamína og fitusýra gerir hveitikím að fullkonu náttúrulega fæðubótaefni. Í vefjuna notum við líka ofurkryddið túrmerik. Ég gæti skrifað góða grein um eiginleika kryddsins en læt nægja í bili að koma inn á að það er hlaðið andoxunarefnum ásamt því að hafa bólgueyðandi áhrif. Það er svo einstakt og öflugt að það ver í reuninni og bætir flest líffæri líkamans. Ég fékk einnig fróðleik hjá góðri indverskri konu að það gerði kraftaverk á brunasár. Þá er því blandað út í jógúrt eða ab mjólk og borið á brunasárið. Endilega leitið ykkur upplýsinga um eiginleika túrmeriks og notið það hiklaust í matargerð :).
Hér er uppskriftin af vefjunum:
Hér er uppskriftin af vefjunum:
Hveitikímvefjur:
3 dl. heilhveiti
2 dl. hveitikím
1 tsk. túrmerik
1 tsk. sjávarsalt
3/4 dl. ólífuolía
200 ml. heitt vatn
Aðferð:
- blandið hveiti, hveitikími og kryddi saman í skál.
- hitil vatn og olíu. Blandið saman við þurrefnin og hnoðið saman.
- Takið smá bita af deiginu sem ætti að passa fyrir eina vefju og fletjið út í hring. Gott að fletja út nokkrar áður en maður byrjar að steikja.
- Þetar allt meðlætið er tilbúið hitið þá góða pönnu og þurrsteikjið vefjurnar á báðum hliðum, eina af annarri. Ágætt er að hafa rakann klút til þess að leggja yfir þegar þær hafa verið steiktar svo raki haldist í þeim og þær brotni síður þegar á að borða þær.
Hér kemur uppskriftin af kjúklingnum:
Tandoori kjúklingur:
4 kjúklingabringur
2 msk. ólífuolía
2 tsk. tandoori krydd
1/2 tsk. sjávarsalt
Aðferð:
- skerið kjúklingakjöt í strimla
- hitið olíu á pönnu við meðalhita og steikið kjúklinginn
- kryddið með tandoori kryddi og salti
Síðast en ekki síst er það sósan, grænmetið og hneturnar. Við notum klettasalat þar sem það er bragðmikið og gott ásamt því að vera ríkt af c-vítamíni og járni. Kasjúhnetur eru eins og aðrar hnetur ríkar af hollri fitu og fólínsýru sem verndar líkaman gegn hjartasjúkdómum og krabbameini. Hér er uppskriftin af sósunni og lokahöndinni á að gera vefjurnar tilbúnnar til þess að bera fram.
Sósa:
1 dós sýrður rjómi
2 tsk. mangó chutney
1 tsk. tandoori krydd
Sjávarsalt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Hrærið öllu saman
75-100 gr. af klettasalati eða blandað salat
1 poki Kasjúhnetur
Dreifið kjúklingi ofaná vefjurnar, setjið síðan sósu og mangósalsa þar yfir. Dreifið síðan salati og hnetum yfir allt saman og rúllið upp.
Bon appetit :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

